Kraftfélagið á EM öldunga í Oulu í Finnlandi
Evrópumeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum fer fram í Oulu í Finnlandi 8.- 15. febrúar. Sjö keppendur eru í íslenska hópnum að þessu sinni, þar af þrír frá Kraftfélaginu.
Dagmar Agnars keppti í M4 -57 og byrjaði á að taka 87,5 kg hækkaði svo 95.5 sem var nýtt heimsmet um stund, eða þar til keppinautur hennar bætti um betur og sló heimsmetið með 96 kg. lyftu. Dagmar lagði þá í 100 kg sem var þvi miður of þungt . Lyftan tryggði þó Dagmar nýtt Íslandsmet í Hb -57 kg. M3 og M4.
Í bekkpressunni: 37.5 og 40 en 42.5 fór ekki upp. Í Réttstöðunni byrjaði Dagmar í 110 kg. tók svo 117.5 kg. en 120 var of þungt. Dagmar endaði með total upp á 253 kg og hafnaði í öðru sæti í flokknum.
Jóhann Frímann M4 - 74 lyfti Hb 85 (pb 7,5kg), í Bp 60 kg. og RL 105 kg.( 5 kg Pb )samtals 250 (15 kg pb) Jóhann hafnaði í 6 sæti í flokknum og sýndi góðar framfarir.
Sigga Snorra keppti í M2 - 69 og tók seríuna 130 kg. 135 kg. (Íslandmet) 140 kg. (Íslandmet) og tryggði sér með þvi glæsilegt brons i hnébeygju. Í bekkpressu opnaði hún á 70 kg. tók svo 72,5 kg. (Íslandsmet) og reyndi svo við 75 kg. sem var því miður of þungt. Í réttstöðulyftu opnaði hún á 140 kg. og sló þar með Íslandsmetið í samanlögðu. Hún hækkaði svo í 145 kg. í annari umferð sem mistókst en tók svo 145 kg. örugglega i þriðju umferð og sló þar með nýtt Íslandsmet i réttstöðulyftu og nýtt Íslandsmet í samanlögðu 357,5 kg. Frammistaðan skilaði henni fjórða sæti i flokknum sem ásamt bronsinu i beygjum er góður endir á flottum degi hjá henni.
Kraftfélagið óskar Dagmar, Jóa og Siggu Snorra til hamingju með frammistöðuna á Evrópumeistaramótinu
Sigga Snorra fékk bronsverðlaun
Dagmar á verðlaunapalli ásamt Edith Guernec frá Frakklandi

