Fimm lágmörk í hús á Akureyri

Keppendur og aðstoðarmenn á Akureyri, Laufey Agnars, Rebekka Silvía, Ingimundur, Hrefna, Andrés, Laufe Kristjáns, Sella

Keppendur, þjálfari og aðstoðarmenn Kraftfélagsins á mótinu á Akureyri

Kraftfélagið sendi sex öfluga keppendur á lágmarkamótið á Akureyri í dag

Laufey K tók 125 kg í Hb, 85 kg í bp og 125 kg í DL sem tryggði henni total upp á 335 kg.

Laufey A tók 130 kg í Hb, 145 kg í Bp og 117,5 kg í DL sem skilaði total upp a 392,5 kg

Sella tók 130 kg í Hb, 100 kg í Bp og 140 kg í DL sem skilaði total upp á 370 kg.
Þetta skilaði þeim öllum HM-lágmarki

Hrefna Sætran tók 135 kg í Hb, 92,5 kg í Bp og 130 kg í DL sem skilaði total upp á 357,5 kg.
Þetta gaf henni 15 kg PB, stigaverðlaun búnaðarkeppenda og EM-lágmark

Sigga Andersen tók 70 kg í búnaðarbekk og náði þar HM-EM-lágmarki í Bp

Næsta mót hjá þeim fimm er einmitt EM í búnaðar-Bp í byrjun ágúst

Anton Haukur keppti og tók 207,5 kg í Hb en náði því miður ekki gildum bekk og hætti því keppni.
Hann er að fara að keppa aftur næsta laugardag á HM í bekkpressu, svo hann verður snöggur að kvitta fyrir það.

KRAFTFÉLAGIÐ

Kraftfélagið er samfélag fólks í styrktarþjálfun og kraftlyftingum hjá Ingimundi Björgvinssyni styrktar- og kraftlyftingaþjálfara í sal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi.

Iðkendahópurinn er fjölbreyttur – fólk á öllum aldri sem stundar kraftþjálfun til að bæta heilsu og almenna líkamlega getu er í meirihluta, en lítill hluti hópsins leggur einnig áherslu á frammistöðu og markmið í keppni og keppir reglulega í kraftlyftingum, innanlands og erlendis.

Kraftfélagið tekur við nýjum iðkendum á öllum aldri, í vel útbúnum kraftlyftingasal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi eða fjarþjálfun sérsniðna eftir þörfum iðkenda.

https://www.kraftfelagid.is
Previous
Previous

Anton Haukur varð heimsmeistari á HM í Varsjá

Next
Next

Kraftfélagið fjölmennti á ÍM öldunga