Anton Haukur varð heimsmeistari á HM í Varsjá
Anton Haukur varð í dag heimsmeistari í bekkpressu með búnaði í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Varsjá í Póllandi.
Anton Haukur keppti í -83 kg drengjaflokki. Hann reyndi fyrst við 170 kg en sú lyfta heppnaðist ekki nægilega vel. Anton Haukur reyndi því aftur við 170 kg í annarri tilraun og þá tókst lyftan af miklu öryggi.Í þriðju og síðustu tilrauninni setti Anton Haukur 175 kg á stöngina og þrykkti henni upp, jafnaði sinn besta árangur og tryggði sér um leið heimsmeistaratitilinn.
Hann varð að ná lokalyftunni til að landa titlinum því Úkraínumaðurinn Maksym Frankov hlaut silfur með 172,5 kg lyftu. Pólverjinn Kacper Jobda var þriðji keppandinn í flokknum og hlaut bronsverðlaun fyrir 147,5 kg lyftu.
Anton Haukur heimsmeistari í bekkpressu með búnaði í -83 kg. drengjaflokki
Anton Haukur ásamt keppendum í öðru og þriðja sæti í keppninni, Maksym Frankov sem hlaut silfur og Kacper Jobda sem hlaut bronsverðlaun.

