Silfur, brons og Íslandsmet hjá Kraftfélaginu á HM öldunga í Reno Nevada

Heimsmeistaramót öldunga fór fram í Reno í Nevada í Bandaríkjunum dagana 15.–24. október 2026. Kraftfélagið átti fimm keppendur á mótinu sem komu heim með silfur- og bronsverðlaun, Íslandsmet og persónulegar bætingar.

Klassískar kraftlyftingar

Dagmar Agnarsdóttir keppti í −57 kg flokki M4 og tryggði sér silfurverðlaun með 260 kg samanlögðum árangri.

Hún byrjaði á 90 kg í hnébeygju en náði ekki að klára tilraunir við 96,5 kg og 97,5 kg. Í bekkpressu tók hún 40 kg og 42,5 kg en 45 kg fóru ekki upp í síðustu umferð.

Réttstöðulyftan gekk vel. Dagmar tók 112,5 kg í fyrstu umferð, 120 kg í annarri og lauk keppni með 127,5 kg lyftu sem var nýtt persónulegt met og jafnframt Íslandsmet í M3 og M4.

Þessi frábæri árangur skilaði henni silfrinu.

Jóhann Tómas Sigurðsson keppti í −93 kg flokki M2 með 545 kg í samanlögðum árangri og tvö ný Íslandsmet.

Hann byrjaði á 185 kg í hnébeygju og hækkaði síðan í 195 kg sem var nýtt Íslandsmet. Í síðustu umferð reyndi hann við 200 kg en sú lyfta gekk ekki upp.

Í bekkpressu tók hann allar þrjár lyfturnar gildar, 125 kg, 130 kg og 132,5 kg. Réttstöðulyftan gekk sömuleiðis vel og þar tók hann seríuna 200 kg, 210 kg og 217,5 kg.

Með síðustu lyftunni tryggði Jóhann sér 545 kg samanlagðan árangur og bætti þar með eigið Íslandsmet um hálft kíló.

Sigríður Snorradóttir keppti í −69 kg flokki M2.

Hún byrjaði ágætlega í hnébeygju og tók 130 kg í fyrstu umferð. Í annarri umferð reyndi hún við 137,5 kg en sú lyfta gekk ekki upp. Hún náði svo að klára sömu þyngd í þriðju umferð.

Í bekkpressu gekk hins vegar ekki sem skyldi. Sigríður reyndi fyrst við 72,5 kg og síðan tvisvar við 75 kg en fékk því miður enga lyftu gilda og hætti keppni.

Kraftlyftingar með búnaði

Hrikalega vel gert hjá Sesselju á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum

Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir keppti í −76 kg flokki M2 og átti mjög gott mót sem skilaði henni bronsverðlaunum og 410 kg samanlögðum árangri.

Hún byrjaði á 137,5 kg í hnébeygju og tók síðan 142,5 kg og 147,5 kg.

Í bekkpressu tók hún 100 kg í fyrstu umferð en fékk 102,5 kg dæmd af í annarri. Hún reyndi aftur við sömu þyngd í síðustu umferð og náði þá að klára lyftuna. Þar með setti hún nýtt Íslandsmet í bekkpressu.

Í réttstöðulyftu tók hún 152,5 kg og 160 kg en gerði síðan atlögu að 172,5 kg í síðustu umferð en það fór því miður ekki upp.

Samanlagður árangur varð því 410 kg sem tryggði henni þriðja sæti í flokknum. Þetta var jafnframt 40 kg bæting frá hennar fyrri besta samanlagða árangri með búnaði.

Hrikalega vel gert hjá Sesselju.

Laufey Agnarsdóttir keppti í +84 kg flokki M2.

Hún byrjaði mótið vel í hnébeygju og tók allar þrjár lyfturnar gildar, 130 kg, 137,5 kg og 142,5 kg.

Í bekkpressu reyndi hún þrisvar við 162,5 kg en náði því miður ekki gildri lyftu að þessu sinni.

Svekkjandi niðurstaða eftir góða byrjun, sérstaklega í ljósi þess hversu vel hún hafði staðið sig í bekkpressu á EM í Litháen sumar.

Kraftfélagið óskar öllum keppendum til hamingju með árangurinn og þakkar þeim fyrir þeirra framlag á mótinu.

KRAFTFÉLAGIÐ

Kraftfélagið er samfélag fólks í styrktarþjálfun og kraftlyftingum hjá Ingimundi Björgvinssyni styrktar- og kraftlyftingaþjálfara í sal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi.

Iðkendahópurinn er fjölbreyttur – fólk á öllum aldri sem stundar kraftþjálfun til að bæta heilsu og almenna líkamlega getu er í meirihluta, en lítill hluti hópsins leggur einnig áherslu á frammistöðu og markmið í keppni og keppir reglulega í kraftlyftingum, innanlands og erlendis.

Kraftfélagið tekur við nýjum iðkendum á öllum aldri, í vel útbúnum kraftlyftingasal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi eða fjarþjálfun sérsniðna eftir þörfum iðkenda.

https://www.kraftfelagid.is
Next
Next

Átta á EM í Druskininkai í Litháen