Evrópumeistaramótið í búnaðarbekkpressu fór fram í Druskininkai í Litháen dagana 2.–9. ágúst. Kraftfélagið sendi stóran hóp keppenda til leiks sem náði góðum árangri, vann til verðlauna og setti nokkur Íslandsmet.
Opinn flokkur
Laufey Agnarsdóttir keppti í +84 kg flokki í opnum flokki.ekkpressu í Litháen.
Hún byrjaði mótið á því að taka 162,5 kg í fyrstu umferð, sem var nýtt Íslandsmet í bæði M1- og M2-flokki. Í annarri umferð var hækkað í 167,5 kg sem fór mjög örugglega upp og bætti hún þar með enn frekar við Íslandsmetin.Í síðustu umferð var svo hækkað í 172,5 kg og hana vantaði eingöngu herslumuninn á að klára þá lyftu líka.
Þessi frammistaða skilaði henni fjórða sæti í flokknum.
Þess ber að geta að Laufey er M2-lyftari og hefði hún keppt í þeim aldursflokki hefði hún orðið langstigahæsti keppandinn þar yfir alla þyngdarflokka.
Unglingaflokkur
Anton Haukur Þórlindsson
Anton Haukur keppti í −83 kg flokki unglinga (sub-junior) og endaði í öðru sæti með nýtt og glæsilegt Íslandsmet, 180 kg.
Hann átti síðan tvær góðar tilraunir við 187,5 kg sem hefðu tryggt honum fyrsta sætið. Það gekk því miður ekki í þetta skiptið, en nóg er af tíma fram undan til að
Öldungaflokkar kvenna
Keppendur Kraftfélagsins í öldungaflokkum kvenna á EM í bekkpressu í Litháen
Frá vinstri: Sigríður Ásthildur Andersen, Laufey Kristjánsdóttir, Rebekka Silvía Ragnarsdóttir, Guðný Ásta Snorradóttir, Sesselja Ómarsdóttir og Hrefna Sætran.
M1
Rebekka Silvía Ragnarsdóttir tók 82,5 kg af mikilli harðfylgni í síðustu umferð eftir að hafa mistekist tvær tilraunir við 80 kg. Þessi eldskírn skilaði henni bronsverðlaunum í flokknum á hennar fyrsta alþjóðlega móti.
Hrefna Sætran tók seríuna 90 kg, 95 kg og 100 kg. Það skilaði henni silfurverðlaunum í flokknum og bætti hún sinn besta árangur um 7,5 kg. Frábær dagur hjá Hrefnu sem braut 100 kg múrinn af miklu öryggi.
M2
Sigríður Ásthildur Andersen fékk 72,5 kg dæmd af í fyrstu umferð en tók síðan 75 kg í annarri og hækkaði í 82,5 kg í þeirri þriðju. Með þeirri lyftu tryggði hún sér bronsverðlaun og nýtt Íslandsmet eftir hádramatískar lokamínútur.
Sesselja Ómarsdóttir tók 100 kg örugglega í fyrstu umferð og jafnaði þar með sinn besta árangur. Hún hækkaði síðan í 105 kg í annarri umferð en sú lyfta fór því miður ekki upp. Í síðustu umferð var hækkað í 107,5 kg og gerð atlaga að silfrinu. Hún fór vel af stað en náði því miður ekki að læsa lyftunni og endaði því í fjórða sæti.
Þetta var hennar fyrsta alþjóðlega mót og ljóst að hún á mikið inni fyrir næstu mót.
Laufey Kristjánsdóttir tók 85 kg og 87,5 kg og reyndi síðan við 92,5 kg í síðustu umferð. Hún fékk lyftuna fyrst dæmda gilda, 2–1, en dómnefnd mótsins sneri þeim dómi við. Árangurinn tryggði henni engu að síður bronsverðlaun í flokknum og nýtt Íslandsmet á hennar fyrsta alþjóðlega móti.
Guðný Ásta Snorradóttir tók seríuna 137,5 kg, 142,5 kg og 147,5 kg, sem var nýtt persónulegt met. Hún tryggði sér með því silfurverðlaun í flokknum og hafnaði jafnframt í öðru sæti í stigakeppninni yfir alla þyngdarflokka.
Ísland varð í þriðja sæti í liðakeppni kvenna í M2-flokki, með 32 stig, á eftir Svíþjóð og Bretlandi og í þriðja sæti í liðakeppni kvenna í M1-flokki, með 17 stig á eftir Bretlandi og Póllandi.
Úrslitin má finna hér
Kraftfélagið óskar öllum keppendum til hamingju með árangurinn.

