Guðný Ásta fékk heimsmeistaratitil á HM í Varsjá

Guðný Ásta varð heimsmeistari í +84 kg. öldungaflokki 2 á Heimsmeistaramótinu í bekkpressu með búnaði í Varsjá í dag. Guðný opnaði á öruggum 135 kg. sem strax tryggðu henni heimsmeistaratitilinn.  Í annarri lyftu voru 142,5 kg. sett á stöngina sem var jöfnun á hennar besta. Guðný lyfti þyngdinni en lyftan var dæmd ógild vegna tæknivillu. Í lokalyftunni hækkaði Guðný í 145 kg. sem hún kláraði af öryggi og 2,5 kg. bætingu á hennar besta árangri.

Guðný á heimsmeistaramótinu í bekkpressu í Varsjá í Póllandi

Guðný Ásta á mótinu í Varsjá

Guðný á verðlaunapallli á heimsmeistaramótinu í bekkpressu í Póllandi
KRAFTFÉLAGIÐ

Kraftfélagið er samfélag fólks í styrktarþjálfun og kraftlyftingum hjá Ingimundi Björgvinssyni styrktar- og kraftlyftingaþjálfara í sal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi.

Iðkendahópurinn er fjölbreyttur – fólk á öllum aldri sem stundar kraftþjálfun til að bæta heilsu og almenna líkamlega getu er í meirihluta, en lítill hluti hópsins leggur einnig áherslu á frammistöðu og markmið í keppni og keppir reglulega í kraftlyftingum, innanlands og erlendis.

Kraftfélagið tekur við nýjum iðkendum á öllum aldri, í vel útbúnum kraftlyftingasal Kraftfélagsins í World Class á Seltjarnarnesi eða fjarþjálfun sérsniðna eftir þörfum iðkenda.

https://www.kraftfelagid.is
Next
Next

Anton Haukur varð heimsmeistari á HM í Varsjá